Von er á allt að þrettán íslenskum bíómyndum og átta þáttaröðum á árinu 2021. Fari svo, hafa verk af þessu tagi aldrei verið fleiri á einu ári. Tekið skal fram að mögulegt er að frumsýningartími einhverra þessara verka færist yfir á næsta ár og í mörgu…
Megas

Leitin að týnda sauðnum
Eitt algengasta vandamálið við sjónvarpsseríur er að þær eru iðullega of langar. Að teygja lopann í marga klukkutíma, heila átta þætti, þýðir ósjaldan að það koma djúpar dýfur. Sem hefur sannarlega átt við um Ráðherrann. Fyrstu tveir þættirnir voru forvitnilegir, næstu tveir meingallaðir, áður en landið tók að rísa aftur í næstu tveimur – og […]

Síðasta lag fyrir heimsendi
Næstsíðasti þáttur Ráðherranns endar á því að Benedikt er mættur í réttirnar, orðinn snarbilaður, og er að leita að týndu sauðunum. Og þar sem hann ráfar á milli fjalla með ímyndaða hundinum sínum fer hann að syngja „Hærra minn Guð, til þín.“ Inn í þetta fléttast útgáfa Megasar af sálminum, þeir félagar Megas og Ólafur […]
Rýnt í: Megas, 75 ára afmælisútgáfu

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 11. apríl, 2020.
Komdu og skoðaðu í kistuna mína…
Meistari Megas fagnaði 75 ára afmæli í vikunni, nánar tiltekið hinn 7. apríl. Alda gefur út bústna safnplötu af því tilefni, á …