Leynilögga Hannesar Þórs Halldórssonar hefur verið seld til dreifingar í N-Ameríku og frönskumælandi svæða. Bresk/franska sölufyrirtækið Alief fer með sölu myndarinnar á heimsvísu, en myndin hefur þegar verið seld til meirihluta helstu markaða….
Leynilögga

The Guardian um LEYNILÖGGU: Ágætlega fyndin
Leynilögga Hannesar Þórs Halldórssonar kemur út á stafrænum leigum í Bretlandi 23. maí. Af því tilefni birtist í The Guardian umsögn um myndina og fylgja þrjár stjörnur.

LEYNILÖGGA yfir 41 þúsund gesti
Leynilögga er í sjötta sæti eftir níundu helgi.

LEYNILÖGGA yfir 40 þúsund gesti
Leynilögga er í fimmta sæti eftir áttundu helgi.

LEYNILÖGGA við 40 þúsund gesta markið
Leynilögga er í fjórða sæti eftir sjöundu helgi.

Svona er LEYNILÖGGA kynnt í Japan
Japanska plakatið fyrir Leynilöggu má sjá hér en þar í landi heitir myndin 2 Bad Cops og verður hún talsett á japönsku.

LEYNILÖGGA yfir 39 þúsund gesti
Leynilögga er í þriðja sæti eftir sjöttu helgi.

LEYNILÖGGA nálgast 38 þúsund gesti
Leynilögga er áfram í fyrsta sæti eftir fimmtu helgi.

LEYNILÖGGA yfir 35 þúsund gesti
Leynilögga er aftur í fyrsta sæti eftir fjórðu helgi.

BIRTA opnar í þriðja sæti, LEYNILÖGGA yfir 31 þúsund gesti
Birta Braga Þórs Hinrikssonar opnar í 3. sæti. Leynilögga er í 2. sæti eftir þriðju helgi.

LEYNILÖGGA valin besta frumraunin í Lübeck
Leynilögga Hannesar Þórs Halldórssonar hlaut í kvöld verðlaun sem besta frumraunin á 63. Norrænu kvikmyndadögunum í Lübeck í Þýskalandi.

LEYNILÖGGA með um 25 þúsund gesti eftir aðra helgi
Leynilögga eftir Hannes Þór Halldórsson er áfram í fyrsta sætinu og aðsókn hefur verið afar góð.

Fréttablaðið um LEYNILÖGGU: Strákarnir skemmta sér og öðrum í löggu og bófa
„Heldur dampi í hasar og djóki þannig að þversagnakenndar tilraunir með íróníu týnast í dekkjareyk og kúlnahríð,“ segir Þórarinn Þórarinsson meðal annars í Fréttablaðinu um Leynilöggu Hannesar Þórs Halldórssonar.

LEYNILÖGGA seld í Evrópu og Asíu
Sölufyrirtækið Alief hefur seld dreifingarréttinn á Leynilöggu Hannesar Þórs Halldórssonar til ýmissa landa í Evrópu og Asíu. Samningar um dreifingu á Bandaríkjamarkaði eru í vinnslu. Þetta kemur fram í Variety.

Lestin um LEYNILÖGGU: Hreðjalaust hommagrín og þunn persónusköpun
„Gamanið samanstendur annars vegar af háði með klisjum og einnar línu bröndurum Hollywood-hasarmynda tíunda áratugarins sem er staðfært og hins vegar af vísunum í íslenska samtíma-dægurmenningu,“ segir Gunnar Ragnarsson meðal annars í umsögn um Leynilö…

Smá um opnunarhelgar og tekjumet
Leynilögga Hannesar Þórs Halldórssonar fær mikla aðsókn í bíó þessa dagana og er það vel. Fregnir um nýtt tekjumet myndarinnar á opnunarhelginni eru þó ekki alveg réttar.

Morgunblaðið um LEYNILÖGGU: Stórfyndin grínmynd
„Mikil sjálfsírónía einkennir kvikmyndina og teymið gerir hiklaust grín að sjálfu sér,“ segir Jóna Gréta Hilmarsdóttir meðal annars í umsögn sinni í Morgunblaðinu um Leynilöggu Hannesar Þórs Halldórssonar.

Gríðarstór opnunarhelgi LEYNILÖGGU
Leynilögga eftir Hannes Þór Halldórsson hlaut gríðarlega aðsókn á frumsýningarhelginni. Dýrið gengur áfram vel í miðasölunni.

Variety um LEYNILÖGGU: Ófrumleg hasarmynd í óvenjulegu umhverfi
„Áferðarfalleg og hröð en ófrumleg, gerir grín að hefðum greinarinnar án þess að bæta einhverju nýju við fyrir utan staðsetninguna,“ segir Jay Weissberg hjá Variety um Leynilöggu Hannesar Þórs Halldórssonar.

Hannes Þór um LEYNILÖGGU: Mynd sem ég vil sjá sjálfur
Cineuropa ræðir við Hannes Þór Halldórsson leikstjóra Leynilöggu, sem sýnd er á Locarno hátíðinni.

Cineuropa um LEYNILÖGGU: Heilmikil fáránleikaskemmtun
„Ekki hátíðamynd í nokkrum skilningi þess orðs og sýnir að hvað það er sem er í gangi í aðalkeppni Locarno hátíðarinnar er afar ruglandi,“ skrifar Marta Bałaga í Cineuropa um Leynilöggu Hannesar Þórs Halldórssonar – virðist þó hafa dálítið gaman af öll…

Screen um LEYNILÖGGU: Sjarmerandi og áhorfendavæn
„Í kynningu á myndinni var lögð áhersla á að leikstjórinn hefði jafnframt verið landsliðsmarkvörður Íslands um árabil. Myndin reynist hinsvegar vera nægilega áhugaverð og með nægilegt skemmtanagildi til að standa á eigin fótum,“ skrifar Neil Young í Sc…

ICS um LEYNILÖGGU: Afar skemmtileg hasarmynd
„Ekki sérstaklega eftirminnileg eða metnaðarfull kvikmynd, en framsæknar kynjahugmyndir, vönduð kvikmyndagerð og snjall umsnúningur á staðalímyndum lyfta hefðbundinni frásögninni,“ segir Eren Odabaşı á vef International Cinephile Society (ICS) meðal an…

Nýr listrænn stjórnandi Locarno hátíðarinnar vill hafa fjörið í fyrirrúmi
Screen ræðir við Giona A Nazzaro, nýjan listrænan stjórnanda Locarno hátíðarinnar um stefnu hans og markmið með hátíðinni. Frumraun Hannesar Þórs Halldórssonar, Leynilögga, er meðal þeirra mynda sem frumsýndar verða á hátíðinni.
…

[Stikla] LEYNILÖGGA Hannesar Þórs Halldórssonar kinkar kolli til Michael Bay og hasarmynda níunda og tíunda áratugsins
Stikla Leynilöggu Hannesar Þórs Halldórssonar er komin út, en myndin verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Locarno sem hefst á föstudag. Sýningar hefjast hér á landi 27. ágúst.

LEYNILÖGGA Hannesar Þórs Halldórssonar valin í aðalkeppni á Locarno
Leynilögga eftir Hannes Þór Halldórsson hefur verið valin í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Locarno, sem fram fer í Sviss dagana 4. – 14. ágúst.

[Kitla] LEYNILÖGGA Hannesar Þórs væntanleg á árinu
Kitla gamanmyndarinnar Leynilögga í leikstjórn Hannesar Þórs Halldórsonar hefur verið opinberuð.

Fyrsta bíómynd Hannesar Þórs Halldórssonar kynnt á Gautaborgarhátíðinni
Pegasus kynnir kvikmyndina Leynilögga í leikstjórn Hannesar Þórs Halldórssonar á markaði Gautaborgarhátíðarinnar sem nú er framundan. Tökum er lokið.

Þessi verk eru væntanleg 2021
Von er á allt að þrettán íslenskum bíómyndum og átta þáttaröðum á árinu 2021. Fari svo, hafa verk af þessu tagi aldrei verið fleiri á einu ári. Tekið skal fram að mögulegt er að frumsýningartími einhverra þessara verka færist yfir á næsta ár og í mörgu…

Allt að tíu bíómyndir og níu þáttaraðir teknar upp á árinu
Þrátt fyrir kórónavírusfaraldurinn og þær takmarkanir sem honum fylgja, standa íslenskir kvikmyndagerðarmenn í ströngu, en útlit er fyrir að allt að tíu bíómyndir og níu þáttaraðir verði í tökum á árinu. Aldrei áður hafa jafn mörg verkefni af þessu tag…