Garðar Cortes óperusöngvari, stofnandi Íslensku óperunnar og skólastjóri Söngskólans til áratuga, andaðist þann 14. maí, 82 ára að aldri.
Ísland: bíóland

Laufey Guðjónsdóttir og íslensk kvikmyndagerð frá 2003 til 2023
Laufey Guðjónsdóttir var fyrsti forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Hún gegndi starfinu í 20 ár, 2003-2023. Hér eru nokkur brot úr þáttaröðinni Ísland: bíóland (2021) sem lúta að íslenskum kvikmyndum á tíma hennar.

Margt af lykilfólki bransans ræðir stöðu og horfur í kvikmyndagreininni
Ýmislegt af því sem fram kemur í niðurlagi lokaþáttar Íslands: bíólands vísar til stöðunnar þessa dagana.

The Northman
The Northman, stórmynd þeirra Robert Eggers og Sjóns, fjallar um hefnd í heimi ofbeldis og örlagatrúar og blandar saman Hollywood-leikurum á borð við Nicole Kidman, Willem Defoe, Ethan Hawke og Önnu-Taylor Joy og norrænum leikurum á borð við Alexander Skarsgård, Claes Bang, Ingvar E. Sigurðsson og Björk. En hverjir eru snertifletirnir við aðrar víkingamyndir eins […]

Þáttaröðin ÍSLAND: BÍÓLAND nú fáanleg á streymisveitunni Uppkast
Ísland: bíóland, þáttaröð í tíu hlutum um sögu íslenskra kvikmynda frá byrjun tuttugustu aldar til okkar tíma, er nú fáanleg á streymisveitunni Uppkast.

Morgunblaðið um þættina ÍSLAND: BÍÓLAND: Í einu orði sagt frábærir
Björn Jóhann Björnsson aðstoðarfréttastjóri á Morgunblaðinu skrifaði um þáttaröðina Ísland: bíóland í dálkinum Ljósvakinn á dögunum og kallaði þættina meðal annars ómetanlega heimild um sögu íslenskra kvikmynda.

Lokaþáttur ÍSLANDS: BÍÓLANDS – staðan nú og horfurnar framundan
Í tíunda og síðasta þætti Íslands: bíólands verður meðal annars fjallað um ýmsar þær nýlegu kvikmyndir sem hafa vakið meiri athygli á alþjóðlegum vettvangi en nokkru sinni fyrr.

ÍSLAND: BÍÓLAND og baráttan fyrir auknum hlut kvenna í kvikmyndagerð
Á seinni hluta annars áratugarins fjölgaði loks í hópi kvenkyns kvikmyndahöfunda. Í níunda þætti Íslands: bíólands verður meðal annars fjallað um myndir þeirra og baráttuna fyrir auknum hlut kvenna í kvikmyndagerð.

ÍSLAND: BÍÓLAND – hvað finnst Íslendingum um íslenskar kvikmyndir?
Í myndunum sem birtust undir lok fyrsta áratugarins og í upphafi annars, kvað sér hljóðs ný kynslóð leikstjóra. Margir þeirra vöktu mikla athygli þegar líða fór á annan áratuginn. Þetta og margt annað í áttunda þætti Íslands: bíólands sem sýndur verðu…

ÍSLAND: BÍÓLAND – hvað er íslensk kvikmynd?
Á síðari helmingi fyrsta áratugarins heldur íslenskum kvikmyndum áfram að fjölga. Margar þeirra má kalla rammíslenskar, þær gerast flestar í nútímanum en sækja efnivið í sögu og sagnaarf eða skoða samfélagsgerð og samskiptavenjur. Þetta og margt fleira…

ÍSLAND: BÍÓLAND – með nýrri öld steig fram ný kynslóð
Í upphafi nýrrar aldar kemur fram ný kynslóð kvikmyndahöfunda og myndum fjölgar. Þetta og margt annað í sjötta þætti Íslands: bíólands sem kallast Ný öld, ný kynslóð.

ÍSLAND: BÍÓLAND – þegar Íslenska kvikmyndasamsteypan var hryggjarstykkið í íslenskri kvikmyndagerð
Á seinni hluta tíunda áratugarins var Íslenska kvikmyndasamsteypan einskonar miðstöð íslenskrar kvikmyndagerðar. Um þetta er fjallað í fimmta þætti heimildaþáttaraðarinnar Ísland: bíóland sem kallast Tími Íslensku kvikmyndasamsteypunnar og er á dagskrá…

ÍSLAND: BÍÓLAND – hvernig Óskarstilnefning BARNA NÁTTÚRUNNAR breytti íslenskri kvikmyndagerð
Á fyrrihluta tíunda áratugarins urðu mikil umskipti í íslenskri kvikmyndagerð. Um þetta er fjallað í fjórða þætti heimildaþáttaraðarinnar Ísland: bíóland sem kallast Rödd í heimskór kvikmynda og er á dagskrá RÚV sunnudag kl. 20:20….

Hér má skoða þættina ÍSLAND: BÍÓLAND
Þrír fyrstu þættirnir í þáttaröðinni Ísland: bíóland – saga íslenskra kvikmynda eru nú aðgengilegir í spilara RÚV, ásamt þeim íslensku bíómyndum sem þegar hafa verið sýndar samhliða þáttaröðinni.

ÍSLAND: BÍÓLAND og vorhret með sólarglennum á seinni hluta níunda áratugarins
Stella í orlofi, Foxtrot, Í skugga hrafnsins, Magnús, Skytturnar og margar fleiri í þriðja þætti Íslands: bíólands sem kallast Vorhret á glugga og er á dagskrá RÚV sunnudag kl. 20:20.

ÍSLAND: BÍÓLAND og íslenska kvikmyndavorið
Annar þáttur Íslands: bíólands kallast Íslenska kvikmyndavorið. Þátturinn er á dagskrá RÚV sunnudag kl. 20:20.

ÍSLAND: BÍÓLAND og hin langa fæðing íslenskra kvikmynda
Fyrsti þáttur Íslands: bíólands kallast Löng fæðing og er á dagskrá RÚV í kvöld kl. 20:20. Hann er helgaður þeim kvikmyndum sem gerðar voru frá upphafi tuttugustu aldar fram til loka sjötta áratugarins.

Ögn um fjársjóðskistuna Kvikmyndasafnið og framlag þess til þáttanna um sögu íslenskra kvikmynda
Kvikmyndasafn Íslands á stóran hlut í þáttaröðinni Ísland: bíóland með því að finna til og endurskanna fjölda eldri kvikmynda og margt annað. Ásgrímur Sverrisson ræddi við Þóru Sigríði Ingólfsdóttur forstöðumann safnsins um þessa vinnu sem og helstu ve…

Ný stikla þáttaraðarinnar ÍSLAND: BÍÓLAND
Ný stikla þáttaraðarinnar Ísland: bíóland er komin út og má skoða hér. Þættirnir hefja göngu sína á RÚV sunnudaginn 14. mars.

[Stikla, plakat] ÍSLAND: BÍÓLAND hefst á RÚV 14. mars
Ísland: bíóland er þáttaröð í tíu hlutum um sögu íslenskra kvikmynda frá byrjun tuttugustu aldar til okkar tíma. Þættirnir hefja göngu sína í RÚV sunnudaginn 14. mars. Stikla og plakat þáttanna hafa verið opinberuð.

Þessi verk eru væntanleg 2021
Von er á allt að þrettán íslenskum bíómyndum og átta þáttaröðum á árinu 2021. Fari svo, hafa verk af þessu tagi aldrei verið fleiri á einu ári. Tekið skal fram að mögulegt er að frumsýningartími einhverra þessara verka færist yfir á næsta ár og í mörgu…