1. maí

The Hell We Will

1. maí 2020

  She sells she sheds  by the small home.  We can make it if we leave right  now—help me  get the melting front  desk of the ice hotel into the bed of this  dodge—we’ll need something to keep   the swelling down after the pharmacy run. Earth day began fifty years ago—see that ratchet strap? […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Dropar

1. maí 2020

Mig dreymdi, við vorum öll í sökkvandi húsi. Ranghalar kjallarans fullir af fólki.  Hvert einasta skúmaskot troðfullt af fólki.  Og vatnsborðið hækkaði.  Þetta var ókunnugt fólk, alvöruþrungið og blautt. Andlit þess voru gráhvít en vatnið sló á þau grænleitum bjarma. Úr fötum þess fossaði vatn. Vatn sem náði því rúmlega upp að mitti. En það […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Vakað lengur

1. maí 2020

Með happaþrennu augun skildi pabbi mig eftir í pulsubréfunum og tómu rauðu hulstrunum engar spennumyndir í hillunum sem náðu veggina á enda bara bílbeltalaus í aftursætum dísæt ístár og engin leið að spóla til baka óþurrkaða tauma heilinn er einsog hringvegur og stoppistöðvarnar brenna skrópandi þorpin puttanna á milli og öll blóðböðin á velmeinandi fósturfjölskyldum […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Harkverkafólk

1. maí 2020

Ég er auðmjúkur starfsmaður á plani lista, menningar og menntunar. Ég hef til margra ára verið partur af sérstöku vinnuumhverfi sem margt listafólk þekkir vel, harkhagkerfinu. Í tilefni af fyrsta maí ætla ég að skrifa um verkafólkið í þessu hagkerfi , harkverkafólkið. Þetta umhverfi verkafólks er samsett úr allskonar giggum og er um margt afar […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Á meðan

1. maí 2020

Legg annan arminn
í brennsluofninn rétt til
að finna hvernig tvístrast
mánabein öln og
sveif
tel bláa dropa oní hvarma tvo
hvorum megin og greiði
lyfsalanum
kyngi blekinu
dreg hæl eftir blásvörtum sandinum þar
til skammstöfunarinnar verður vart
greiði…

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Þrjú ljóð

1. maí 2020

sjálfsþróun sjálfsfróun loksins ein með náttúru í Bolungarvík í beinavík hér læt ég skóga vaxa Þegar sólin skín skærast sést enginn skugganna. Hvernig á að eyða sumardegi að láta mýflugur borða sig í morgunsárið rétt eins og maður lætur elskhuga elska sig í skógi elskov i skov synda svo yfir haf og dansa kvöldið burt […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Opið bréf til gatnamálastjóra

1. maí 2020

Kæri herra gatnamálastjóri þú meistari öngstrætanna leiðir okkar hlutu víst fyrr eða síðar að skarast oft hef ég velt því fyrir mér hvar þú haldir þig og virðist nú hafa rambað á miðju völundarhússins hjarta glitvefnaðarins hvern hefði grunað að það væri einmitt hér í þessari brynningarholu úr alfaraleið kæri herra gatnamálastjóri þú ert vefarinn […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Samningalota á degi verkalýðsins

1. maí 2020

Ég vil meira. Ha! Má ég fá meira? Máttu hvað? Gæti ég fengið meira? Viltu meira? Ég vil fá aðeins meira! Fékkstu ekki súpu? Get ég fengið meiri súpu? Þú varst að fá súpu. Mig langar í meira. Þú ert búinn að fá súpu. Get ég fengið meira? Afhverju viltu meira? Ég þarf að fá […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Skáldskapur

1. maí 2020

Þetta hótel er búið að valda mér vonbrigðum frá því að ég elti gamla manninn sem bar töskuna mína upp marmarastigana. Ég hef ekki gist á svona lélegum stað frá því að bók númer tvö um samíska rannsóknarlögreglumanninn Roger kom út. Auðvitað gerði ég mér grein fyrir að húsið er gamalt, öll hús í þessu […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Þú ert þá draugur fyrst þú ert eins dauður og þú vilt vera láta

1. maí 2020

Alltof stór fötin lágu á gólfinu. Ég var ekki lengur karlmaður. Ég var ský í buxunum af konunni minni. Sverðdansarinn mikli frá Khachaturian. Í sokkabuxum. Leið betur þannig fann fyrir öryggistilfinningu í kvennmannsfötum í karllægum heiminum. Lá ofan í baðkarinu í sjávarseltunni svo næmur að ég sá andlit í sveppagróðrinum í loftinu. Fannst það hafað […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Brot úr fyrsta drafti að „Út að drepa túrista“

1. maí 2020

Kalmann Pétur Jónsson mundi vel eftir því þegar hann kom fyrst inn í þessa hliðarveröld á efri hæð þjónustumiðstöðvarinnar á Geysi. Hversu oft hafði hann ekki skimað yfir borðraðirnar eftir kunnuglegum andlitum?  Núna var salurinn tómur og einu hljóðin sem heyrðust voru frá rigningardropum sem lömdu litlu rúðurnar undir súðinni. Hún hafði verið svo heillandi, […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Ástarbréf til verkalýðsins

1. maí 2020

frà farandverkamanni  Hvernig líður mér? Hvernig líður mér? Ég sit og skrifa ástarbréf til þín á hverju kvöldi.  Í huganum fyllast óteljandi möppur af yfirfullum skjölum; af sögum og heitum sem ég vildi að við strengdum og segðum til lengdar svo við gætum verið saman út í eilífðina án þess að nokkurntíman þurfa að hika […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

[án titils]

1. maí 2020

Þú skilur ekki
hve löng leiðin er til Ullern
fyrr en þú elskar einhvern þar
hve breitt
borð með morgunverði er
hálf dýna
hve
furðulega drjúgur
einn millimeter er
við
höfum ekkert pláss
fyrir aðskilnað
á milli okkar

Úr ljóðabókinni ‘Om hvor lang…

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Þrjú ljóð

1. maí 2020

  Kvika Þegar ég skrifa frá hjartanu rennur blóð úr pennanum og rauð orðin æpa á mig af hvítu blaðinu. Miskunarlaus og ásakandi rífa þau upp gömul sár . Þar til þau streyma beint úr opum æðunum Heit og uppáþrengjandi finna þau sér farveg að kvikunni. Nístandi tár fortíðar ósýnileg orð á blaði . Ný […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Brasilía

1. maí 2020

Koma þau fyrir, þetta fólk með búka úr stáli vængjaða olnbolga og augntóftir sem bíða þyrpinga skýja að veita sér svipbrigði, þetta ofur-fólk! – Og barn mitt nagli rekinn, rekinn inn. Hann hljóðar í feiti beinanna hnusar eftir fjarlægðum. Og ég, næstum útdauð, þrjár tennur hans skera sig á mínum þumli – og stjarnan, sú […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

„Þegar ég verð stór ætla ég að verða píslarvottur“

1. maí 2020

er klárlega skrítið svar fyrir hvaða kennara sem er þegar hann spyr leikskólabarn, en við töku tvö, hvaða orð lýsir mér þá best, þessum kynþáttakrossi fiðrildis og fagurfræði í Super Fly, annað en skrítinn? Líklega hefði líka nægt að kalla mig skýran krakka til að lýsa ákafri löngun minni í þess háttar dauða sem knýr […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Mamma hefur talað

1. maí 2020

Hún mamma hefur talað segir að nú sé komið nóg. Hún reyndi að segja það upphátt í mörg hundruð ár en enginn heyrði. Nú dreifir hún ósýnilegum skilaboðum út um allar jarðir. Dularfullt. Fólk fellur um sjálft sig kliðurinn hættir – þögnin tekur við. Meira að segja landsfeður falla um sig sjálfa reyna að mótmæla […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Til leiðsögumanna

1. maí 2020

– á erfiðum tímum Leiðsögumenn allra landa sameinist! og leiðið okkur leiðið okkur um leynda staði nýjar slóðir meðan við neyðumst til að dvelja hér hvert með öðru ég veit að þið eigið plástur í vösum til að setja á bágtið þegar við hrösum og áttavita og vegahandbók sögur og snýtubréf og spritt ég veit […]

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

[án titils]

1. maí 2020

Kona leggur
ekkert inn
í bankann
Stendur ber eins og aumingi
í afgreiðslunni segir:
Mikið þætti mér nú gaman
að fá einn pening
Og gjaldkerinn segir:
Það eru engir peningar til
lengur
Bara skuldir
og þær máttu fá
eins margar
og þú mögulega getur riðið

Hljóðskrá ekki tengd.
1. maí

Allir saman

1. maí 2020

HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL FRÁBÆR SKEMMTUN HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL VIRKILEGA FLOTT HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL KLÁRLEGA GAMAN HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HELDUR BETUR HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HVERNIG ER VEÐRIÐ HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL EN EKKI HVAÐ HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL ALLIR Í STUÐI HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HÆTTU NÚ ALVEG HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL MEIRA SVONA HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL MJÖG ÁHUGAVERT HUGRENNINGATENGSL HUGRENNINGATENGSL […]

Hljóðskrá ekki tengd.